﻿Markús.
16.
Þegar hvíldardagurinn var liðinn keyptu María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmolíur til að smyrja líkið. 
Eldsnemma um morguninn, fyrsta dag vikunnar, komu þær að gröfinni þegar sólin var að koma upp. 
„Hvern getum við fengið til að færa steininn frá opinu?“ veltu þær fyrir sér. 
En þá sáu þær að steininn hafði verið færður frá – og þetta var ofboðslega stór steinn. 
Þær litu inn í gröfina og sáu að ungur maður sat hægra megin í henni, klæddur í síða, hvíta skikkju, og þær urðu mjög hræddar. 
„Verið ekki hræddar!“ sagði maðurinn. „Þið eruð að leita að Jesú frá Nasaret, sem var krossfestur. Hann er ekki hér því hann er risinn upp. Sjáiði, þarna lá hann. 
Farið nú og segið lærisveinunum og Pétri að Jesús sé farinn á undan þeim til Galíleu. Þar sjáið þið hann aftur, alveg eins og hann sagði ykkur.“ 
Þær flýttu sér út og burt frá gröfinni, skjálfandi af ótta, og voru of hræddar til að segja neinum frá því sem þær höfðu séð. 
Þegar Jesús reis upp snemma fyrsta dag vikunnar birtist hann fyrst Maríu Magdalenu, sem hann hafði kastað sjö djöflum út úr. 
Hún fór síðan til hinna, þar sem þeir sátu og syrgðu, og sagði þeim að hún hefði séð hann. 
Þeir trúðu henni ekki þegar hún sagðist hafa séð hann á lífi. 
Eftir það birtist hann aftur, tveimur þeirra í þetta skiptið, þegar þeir voru á göngu úti í sveitinni. 
Þeir sögðu hópnum frá þessu en þeim var heldur ekki trúað. 
Síðan birtist hann lærisveinunum ellefu þegar þeir sátu og borðuðu, og skammaði þá fyrir að vera svona þrjóskir, að trúa ekki þeim sem höfðu séð hann eftir upprisuna. 
„Farið út um allan heim,“ sagði hann við þá, „og segið öllum frá fagnaðarerindinu. 
Allir sem trúa og láta skíra sig munu bjargast, en allir sem trúa ekki munu glatast. 
Þið getið þekkt þá sem trúa á ákveðnum merkjum: Þeir munu kasta út djöflum í mínu nafni og tala á nýjum tungumálum. 
Þeir munu geta tekið upp snáka og drukkið eitur án þess að það skaði þá, og þeir munu snerta þá sem eru veikir og þeir munu verða heilbrigðir.“ 
Eftir að Drottinn hafði sagt þetta við þá fór hann upp til himna, þar sem hann situr við hægri hönd Guðs. 
Þeir fóru síðan út og sögðu frá fagnaðarerindinu alls staðar. Drottinn var með þeim og staðfesti orð þeirra með merkjunum. 
