10
Síðan fór hann þaðan til Júdeu og austur fyrir ána Jórdan. Eins og alltaf safnaðist mikill mannfjöldi í kringum hann og hann kenndi þeim eins og hann var vanur að gera.+ Hópur farísea kom til hans og reyndi að leggja fyrir hann gildru með því að spyrja hann hvort maður mætti skilja við konuna sína.+ + „Hvað sagði Móse um það?“ spurði Jesús þá á móti.+ „Móse leyfir að hann skilji við hana með skriflegu skjali,“ svöruðu þeir.+ „Hann setti ykkur þessa reglu vegna þess að þið eruð svo miskunnarlausir,“ sagði Jesús.+ „Í upphafi skapaði Guð bæði karla og konur.+ Maðurinn fer frá föður sínum og móður og tengist konunni sinni.+ Þau verða eitt, eins og tvær manneskjur í einum líkama.+ Og maðurinn ætti ekki að rífa í sundur það sem Guð hefur tengt saman.“+ + 10 Þegar þeir voru komnir heim spurðu lærisveinarnir Jesú aftur út í þetta.+ 11 „Sá sem skilur við konuna sína og giftist annarri konu,“ sagði hann, „heldur framhjá henni.+ 12 Og ef kona skilur við manninn sinn og giftist öðrum manni heldur hún framhjá honum.“+ +
13 Fólk kom til Jesú með ung börn og vildi fá hann til að snerta þau, en lærisveinarnir skömmuðu það.+ 14 Jesús var ekki ánægður að sjá þetta. „Leyfið börnunum að koma til mín,“ sagði hann. „Þau mega það alveg! Konungsríki Guðs er fyrir fólk eins og þau.“+ + 15 Muniði það að sá sem tekur ekki við konungsríki Guðs eins og barn kemst ekki þangað.“+ + 16 Síðan tók hann börnin í fangið og blessaði þau.+
17 Einu sinni þegar Jesús var úti á göngu kom maður hlaupandi til hans og féll á kné fyrir framan hann. „Góði kennari!“ sagði hann við Jesú. „Hvað þarf ég að gera til þess að ég fái örugglega eilíft líf?“+ 18 „Hvað meinarðu með því að ég sé „góður“?“ spurði Jesús hann. „Guð er sá eini sem er „góður“.+ 19 Þú þekkir boðorðin: Ekki halda framhjá, ekki myrða, ekki stela, ekki ljúga, ekki svíkja, sýndu föður þínum og móður virðingu.“+ 20 „Kennari,“ svaraði maðurinn, „ég er búinn að halda öll þessi boðorð síðan ég var ungur.“+ 21 Jesús horfði ástúðlega* á hann. „Þá vantar bara eitt uppá hjá þér,“ sagði hann. „Farðu og seldu allt sem þú átt og gefðu fátækum það sem þú færð fyrir það. Þá eignastu auðævi á himnum – komdu svo og fylgdu mér og berðu krossinn þinn.“+ + 22 Það var mikið áfall fyrir manninn að heyra þetta. Hann fór þaðan dapur í bragði, því hann átti miklar eigur.+ 23 Jesús leit á lærisveinana. „Mikið er erfitt fyrir ríkt fólk að komast inn í konungsríki Guðs,“ sagði hann.+ 24 Þetta fannst lærisveinunum merkilegt að heyra. „Það er erfitt fyrir þá sem treysta á peningana sína að komast inn í konungsríki Guðs,“ sagði Jesús.+ 25 „Það væri auðveldara fyrir kameldýr að komast í gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að komast inn í konungsríki Guðs.“+ + 26 Lærisveinarnir voru alveg dolfallnir. „Hvernig getur nokkur þá bjargast?“ veltu þeir fyrir sér.+ 27 Jesús heyrði þetta. „Það er vissulega ómögulegt fyrir fólk,“ sagði hann, „en ekki fyrir Guð, sem getur allt.“+ 28 „En hvað með okkur?“ spurði Pétur. „Við yfirgáfum allt til að fylgja þér.“+ 29 „Ég get sagt ykkur það,“ svaraði Jesús, „að allir sem hafa yfirgefið heimili sitt, bræður, systur, föður, móður, eiginkonu, börn eða eigur vegna mín og fagnaðarerindisins+ + 30 fá hundrað sinnum meira til baka fyrir það: heimili, bræður, systur, mæður, börn, eigur – og ofsóknir – og eilíft líf í framtíðinni.+ + 31 En margir þeirra sem eru fyrstir verða síðastir og margir þeirra sem eru síðastir verða fyrstir.“+
32 Á leiðinni upp til Jerúsalem urðu lærisveinarnir tólf hræddir þegar Jesús sagði þeim frá því sem myndi koma fyrir hann.+ 33 „Nú komum við bráðum til Jerúsalem,“ sagði hann. „Þar munu æðstuprestarnir og lögmálskennararnir handtaka Mannssoninn, dæma hann til dauða og leyfa heiðingjunum að taka hann.+ + 34 Þeir munu hæðast að honum, beita hann ofbeldi, hrækja á hann og drepa hann, og þremur dögum síðar mun hann rísa upp aftur.“+ +
35 „Kennari,“ sögðu Jakob og Jóhannes Sebedeussynir við Jesú, „okkur langar að biðja þig um að gera svolítið fyrir okkur.“+ 36 „Nú,“ svaraði Jesús. „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“+ 37 „Þegar þú kemst til valda viljum við fá að sitja sinn hvorum megin við þig,“ svöruðu þeir.+ + 38 „Þið vitið ekki um hvað þið eruð að biðja,“ sagði Jesús. „Þið viljið ekki drekka það sem ég þarf að drekka, eða vera skírðir þeirri skírn sem ég verð skírður.“+ + 39 „Jú, víst,“ andmæltu þeir. Jesús sagði: „Þið fáið vissulega að drekka það sem ég þarf að drekka, og verðið skírðir þeirri skírn sem ég verð skírður.+ 40 En það er ekki mitt að ákveða hverjir sitji sinn hvorum megin við mig – þeir verða þar sem eiga að vera þar.“+ 41 Þegar hinir lærisveinarnir tíu heyrðu þetta urðu þeir fúlir við Jakob og Jóhannes.+ 42 En Jesús kallaði þá til sín. „Þið vitið að svokallaðir leiðtogar heiðingjanna níðast á þegnum sínum og undiroka þá.+ 43 Þannig verður það ekki hjá ykkur. Sá ykkar sem vill vera merkilegastur verður að þjóna hinum.+ 44 Sá sem vill gerast leiðtogi verður að gerast þjónn.+ 45 Mannssonurinn kom ekki til að láta þjóna sér, heldur til að frelsa aðra með því að fórna lífi sínu.“+ +
46 Þegar Jesús var kominn í gegnum borgina Jeríkó og var á leið út úr henni aftur með lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat blindur maður, Bartímeus Tímeusarson, þar við veginn og betlaði.+ 47 Þegar hann heyrði að þetta væri Jesús frá Nasaret byrjaði hann að hrópa á hann. „Jesús, sonur Davíðs! Sýndu mér miskunn!“+ 48 Fólkið sagði honum að þegja en hann hrópaði bara enn hærra: „Sonur Davíðs! Sýndu mér miskunn!“+ 49 Jesús stoppaði og sagði þeim að koma með Bartímeus til sín. Fólkið kallaði þá á Bartímeus. „Komdu, félagi,“ sagði það við hann. „Hann er að kalla á þig!“+ 50 Bartímeus henti af sér skikkjunni, stóð upp og fór til Jesú.+ 51 „Hvað viltu að ég geri fyrir þig?“ spurði Jesús hann. „Mig langar að fá sjónina,“ svaraði blindi maðurinn.+ 52 „Gott og vel,“ sagði Jesús. „Trúin þín hefur læknað þig.“ Um leið fékk hann sjónina og byrjaði að fylgja Jesú.+ +
+ 10:1 Matt 19:1-2 + 10:2 Matt 19:3 + 10:2 Farísear, Mrk 2:16. + 10:3 5Mós 24:1 + 10:4 5Mós 24:1 + 10:5 Matt 19:8 + 10:6 1Mós 1:27; 1Mós 5:2 + 10:7 1Mós 2:24 + 10:8 1Mós 2:24 + 10:9 Matt 19:6 + 10:9 Jesús kennir að hjónaband er sköpunarverk Guðs en ekki bara samningur fólks. Skilnaður var leyfður vegna harðs hjarta, en Guðs áætlun er eilíf sameining. + 10:10 Matt 19:10 + 10:11 Matt 19:9; Lúk 16:18 + 10:12 1Kor 7:10-11 + 10:12 Jesús segir að framhjáhald jafngildi skilnaði. Þetta var sterkara en skoðun farísea og lögmálskennaranna, sem leyfðu körlum að skilja. + 10:13 Matt 19:13-15; Lúk 18:15-17 + 10:14 Matt 19:14; Lúk 18:16 + 10:14 Konungsríki Guðs, Mrk 1:14. + 10:15 Matt 18:3; Lúk 18:17 + 10:15 „Eins og barn“ – börn eru háð öðrum, auðmjúk og treysta fullkomlega. Konungsríki Guðs krefst auðmýktar og trausts, ekki sjálfsstyrks. + 10:16 Matt 19:15 + 10:17 Matt 19:16-30; Lúk 18:18-30 + 10:18 Matt 19:17 + 10:19 2Mós 20:12-17; 5Mós 5:16-20 + 10:20 Matt 19:20 * 10:21 Ástúð er kærleikur og hlýja. + 10:21 Matt 19:21; Lúk 18:22 + 10:21 Jesús elskar manninn en biður hann um að sleppa öllu. Auður hans (peningar) og eignir voru hindrun fyrir hann. + 10:22 Matt 19:22 + 10:23 Matt 19:23 + 10:24 Matt 19:23 + 10:25 Matt 19:24 + 10:25 „Úlfaldi í gegnum nálarauga“ – ýkt líking um hvað það er ómögulegt að treysta á auð (peninga) í stað Guðs. Þetta undirstrikar að konungsríki Guðs krefst auðmýktar (sjá Mrk 9:37). Ýktar líkingar (hyperbolic) var þekkt kennsluaðferð á dögum Jesú. Dæmi: Mrk 9:43-47; Matt 5:18, 29-30; 7:3-7; 23:24; Lúk 14:26. + 10:26 Matt 19:25 + 10:27 Matt 19:26; Lúk 18:27 + 10:28 Matt 19:27 + 10:29 Matt 19:29 + 10:29 Fagnaðarerindisins, Mrk 1:1. + 10:30 Matt 19:29 + 10:30 Jesús lofar endurgjaldi (verðlaunum) – ekki bara á himni heldur núna í samfélagi kirkjunnar, en með ofsóknum. + 10:31 Matt 19:30; Matt 20:16 + 10:32 Matt 20:17-19; Lúk 18:31-34 + 10:33 Matt 20:18-19 + 10:33 Mannssonurinn, Mrk 2:10. Lögmálskennarar, Mrk 1:22. Æðstuprestarnir, Mrk 2:26. + 10:34 Matt 20:19 + 10:34 Þriðji spádómurinn um þjáningu – Jesús undirbýr þá fyrir að hann muni deyja á krossi fyrir utan Jerúsalem. Fyrri tvö skiptin eru Mrk 8:31-33 og 9:30-32. + 10:35 Matt 20:20-21 + 10:36 Matt 20:21 + 10:37 Matt 20:21 + 10:37 Þeir eru að biðja um tvö bestu embættin í nýrri stjórn sem þeir sjá fyrir sér að Jesús muni koma á. + 10:38 Matt 20:22; Lúk 12:50 + 10:38 „Bikarinn“ og „skírn“ – myndmál fyrir þjáningu og dauða Jesú. Þeir skilja ekki kostnaðinn. + 10:39 Matt 20:23 + 10:40 Matt 20:23 + 10:41 Matt 20:24 10:42 Undiroka merkir að kúga. Þrælar eru t.d. oft undirokaðir af eigendum sínum. + 10:42 Matt 20:25 + 10:43 Matt 20:26 + 10:44 Matt 20:27 + 10:45 Matt 20:28; Jes 53:10-12 + 10:45 „til að fórna lífi sínu til að frelsa aðra“ – lykilsetning: Jesús gefur líf sitt sem lausnargjald fyrir syndir manna. Mannssonurinn, Mrk 2:10. + 10:46 Matt 20:29-34; Lúk 18:35-43 + 10:47 Matt 20:30 + 10:48 Matt 20:31 + 10:49 Matt 20:32 + 10:50 Matt 20:32 + 10:51 Matt 20:33 + 10:52 Matt 20:34; Lúk 18:42-43 + 10:52 „Trúin þín hefur læknað þig“ – Bartímeus fær ekki bara sjón heldur fylgir Jesú – hann verður lærisveinn.